23.2.2009 | 21:03
Skuldabréfin seld með 50% afslætti
Skildi ég það rétt að nýju bankarnir væru að kaupa skuldabréfin vegna íbúðarlánanna með 50% afslætti, eins og kemur fram í greinargerð Framsóknarflokksins?
Ef það er rétt veldur niðurfelling skulda um 20% ekki tapi hjá nýju bönkunum, það er búið að afskrifa það í gömlu bönkunum.
Annars er þetta í raun bara eftirgjöf á vöxtum í flestum tilfellum, þar sem áfallnar verðbætur eða gengishækkun, eru í flestum tilfellum orðnar meira en 20% af stöðu lánanna. Það væri í raun eingöngu verið að gefa eftir af höfuðstól lána sem veitt voru á árinu 2008.
Leggja til 20% niðurfellingu skulda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er það sem ég hef verið að benda á. Kaupþing ætlar að afskrifa 67% af öllum innlendum útlánum og Landsbankinn eitthvað svipað. Kostnaður þessara banka við að afskrifa 20% er því nákvæmlega enginn. Það eru erlendir kröfuhafar sem eru að borga brúsann.
Marinó G. Njálsson, 24.2.2009 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.