Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Seðlabankinn að veiða útdauðar tegundir dýra

Sú aðgerð seðlabanka að hækka stýrivexti er réttlætt með því að áhættufjárfestar sem eigi jöklabréf séu líklegri til að halda áfram að gefa út bréf i krónum. Veita viðspyrnu á gjaldeyrismarkaði eins og það er orðað.

Áhættufjárfestar eru eins og útdauð dýrategund, það er alveg sama hvaða agn er notað, þeir koma ekki.  Við gætum alveg eins sent út mannskap á geirfulglaveiðar til að veiða í matinn.


mbl.is Óhjákvæmilegt að hækka stýrivexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti IMF að lána ríkinu í ISK?

Ég er búinn að sveiflast fram og til baka með hvað mér eigi að finnast um hækkunina á stýrivöxtunum.  Í aðra röndina finnst mér þetta góð aðgerð til að laða að erlent fjármagn.  Í hina röndina er mér ómögulegt að skilja hvar þeir áhættufjárfestar sem eiga að gefa út skuldabréf í krónum eiga að finnast, þar sem þeir halda annað hvort að sér höndum eða eru búnir að tapa áhættufénu.

Til að þessi aðgerð hefði raunveruleg áhrif, sýnist mér að IMF ætti að gefa þau skuldabréf sem þeir eru að lána íslenska ríkinu út í ISK, sú aðgerð myndi örugglega styrkja gengið.  Áhrifin af slíku væri fljót að skila sér, og ætti að koma í veg fyrir verðbólgu af völdum falls krónunnar. Það væri hægt að greiða lánið út í USD, en endurgreiðslan yrðir i ISK. 

Á meðan þeir eru ekki tilbúnir að taka þá áhættu sem því fylgir, er mér spurn hvernig þeir geta ætlast til að aðrir séu tilbúnir að taka hana. 

 


Þotuhreyfillinn sem leiddi til þess að flogið var of hátt aftur kominn í gang.

Forvitnilegt að vita hvort það að setja þotuhreyfilinn aftur á fullt virki eins og í fluginu þegar flugvél stollar, þ.e. geti leitt til að ná aftur stjórn á vélinni, eða hvort þetta flýti bara fyrir brotlendingunni og geri hana harðari.

Nú er nauðsynlegt að sá sem situr í flugstjórasætinu viti hvað hann er að gera og nái að rétta vélina af áður en hún skellur niður.


mbl.is Vaxtahækkun vegna IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stýrivextir 2,1%, umfram verðbólgu

Þessi aðgerð ætti að vera fljót að stöðva "þensluna", fyrr má nú rota en dauðrota atvinnulífið og fjárhag heimilanna.
mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak sem mætti veita meiri athygli.

Það er gott framtak að kynna íslenska hönnun á sýningum sem þessum.  Gaman að sjá að íslendingar eru ekki dauðir úr öllum æðum þrátt fyrir kreppuna.  Það er einmitt á sýningum sem þessari sem hægt er að sýna að það býr frjótt afl í hugum fólks hér á hjara veraldar. 

Þegar byggja þarf upp verður að setja kraft í grunninn og efla hönnun, vöruþróun og uppfinningar. Það eru verkefni komandi mánaða og ára.  Það þarf líka að setja kraft í að markaðssetja þær vörur sem koma úr þeirri þróunarvinnu, á því sviði eigum við mikið af fólki með reynslu.

Þess er óskandi að það skapist viðskiptatækifæri út frá þessari sýningu.


mbl.is Íslenskir hönnuðir sýna í Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hengjum bakarann og smiðinn líka - þá erum við örugg - eða hvað?

Það geisar margir sjálfskipaðir dómarar um bloggheima og fella dóma yfir þeim mönnum sem fremst hafa staðið í útrás undanfarinna ára.  Þeir eru búnir að ákveða að kreppan sem er að skella á okkur núna, sé nokkrum einstaklingum að kenna.

Aðrir vilja ekki vaða yfir með sömu látum og vilja fá einhversskonar rannsóknarrétt sem skila á niðurstöðu, sem hefur verið köllu hvítbók og aðrir vilja kalla hvítþvottabók.  Ég hef ekki hugmynd um hvort sú rannsókn verður með svipuðum hætti og hjá McCarthy þegar hann var að leita að kommúnistum, eða bara eitthað yfirvarp til að segjast hafa leitað en ekkert fundið.

Þegar röð atburða leiðir til þess að eitthvað ástand skapast, þá er alltaf spurningin hver er sekur.  Er það sá sem bjó til kortið sem siglt var eftir, af því skerið sem skipið strandaði á var ekki á því, var það skipstjórinn eða farþegarnir sem vildu komast fyrr á áfangastað, eða útgerðarstjórinn sem vildu að þessi leið yrði farin en ekki örugga leiðin sem var þekkt til að hægt væri að þóknast farþegunum?

Í mínum huga er það skipstjóri sem ber ábyrgð á skipinu.

En til að vera örugg, er ekki best að láta kortagerðarmanninn, vélstjórann og útgerðarstjórann taka á sig sökina líka?

Að stýra lónshæð í Hálslóni með vatnsfötu

Í mörg ár hafa margir vitað að reikniformúlan sem seðlabankinn notar er meingölluð.  Hún gerir ráð fyrir að hægt sé að nota vexti til að stýra flæði á peningum.  Íslenska hagkerfið er bara svo smátt að þetta er eins og að ætla að nota vatnsfötu til að stýra vatnshæð í Hálslóni.   Peningaflæðið fór bara um allt aðrar rásir en þær sem Seðlabankinn hafði stjórn á.  Seðlabankinn fann þensluna og verðbólguna sem var undirliggjandi, en ruglið á genginu varð þess valdandi að þennslan skilaði sér ekki út í verðlagið fyrr en í mars sl.

Allir voru  ánægðir á meðan þetta leiddi til þess að vöruverð á innflutningi var svo hagstætt .  Útflytjendur fluttu framleiðsluna einfaldlega til útlanda.  Þannig hefur þetta leitt til þess að staðan í dag er verri en hún hefði verið án þessarar stýringar.


mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignaupptaka á Vestfjörðum sl. 10 ár

Á sama tíma og íbúðaverð á Vestfjörðum hefur hækkað um 45% hefur vísitalan sem lánin eru bundin við hækkað um 72%.  Þannig að rýrnun eignarinnar á Vestfjörðum hefur verið um 2% á ári.   

Annars staðar á landinu samsvarar eignamyndunin því að sama fjárhæð hefði verið lögð inn á bók með 4% til 8% vöxtum og verðbótum.

 


mbl.is Rúmlega ferfaldur munur á fermetraverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlir og stórir þjófar

Þegar ég var lítill heyrði ég móður mína gjarnan fara með eftirfarandi vísu en ég veit engin deili á hvaðan hún kemur eða hver höfundur hennar er:

Stelir þú litlu og lifir lágt

í steininn settur verður

En steliru miklu og lifir hátt

í stjórnarráðið ferðu.

Efnislega á hún jafn mikið við og hún hefur átt alla tíð.  Og ekki orð um það meir.

 


Útrás er ekki af hinu illa

Það skiptir mestu máli í hverju útrásin er fólgin.  Við höfum stöndug fyrirtæki í dag á Íslandi, sem hafa verið í útrás, þar má m.a. nefna Marel hf, Össur hf, Actavis hf, CCP hf og mörg fleiri.  Öll hafa þessi fyrirtæki það sameiginlegt að þau eru að selja vörur, en ekki hugmynd af verðmætum.  Þau eru með víðtæka starfsemi í öðrum löndum en hafa höfuðstöðvarnar á Íslandi.

Framangreind fyrirtæki byggja á Íslensku hugviti.  Grunnurinn að flestum þeim liggur í uppfinningum og/eða vöruþróun, sem tekist hefur að markaðssetja í öðrum löndum.

Útflutningsráð hefur nú á haustdögum einmitt lagst á sveif með fyrirtækjum sem byggja á vöruþróun og hefur boðist til að styrkja hana með því að leggja fram fjármagn til að greiða fyrir hluta launa þeirra sem starfa að því að þróa nýjar vörur sem gætu leitt af sér öflug fyrirtæki eins og þeim sem að framan eru talin.  Þetta er frábært framtak sem vert er að taka eftir.  


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband