Er ávinningurinn meiri en kostnaðurinn?

2.700 börn og 1.500 fullorðnir taka þetta lyf. Kostnaður Sjúkratrygginga stefnir í 762 millj.kr.Það er auðvelt að skoða bara kostnaðarhliðina við lyfjakaupin. Til að það fáist einhver vitræn niðurstaða þarf líka að skoða ávinninginn.

Athyglisbrestur veldur því að börn skila árangri í skóla í samræmi við gáfur, þar sem þau ná ekki að halda athyglinni nógu lengi á námsefninu og þó svo þau nái tökum á því, er ekki víst að sú kunnátta skili sér í prófum.  Ég þekki dæmi um börn sem hafa farið úr falleinkunnum í fyrstu einkunn eingöngu vegna þess að þau fóru að nota þessi lyf.

Þegar ég byrjaði að kynna mér ADHD, var eingöngu hægt að finna upplýsingar um þetta heilkenni í börnum.  Það virtist ekki vera viðurkennt að athyglisbresturinn fylgdi börnunum fram á fullorðinsár.  

Það segir sig sjálft að þeir sem ekki standast þær kröfur sem gerðar eru í skóla, eru ólíklegir til að fara i framhaldsnám, þessir einstaklingar lenda því frekar í láglaunastörfum.  Ef þetta lyf hjálpar fólki til að ná þeim árangri sem það á skilið finnst mér með ólíkindum að eingöngu sé skoðaður kostnaður einnar stofnunar vegna þess. 

Ef laun þessara 1.500 fullorðinna einstaklinga hækka að jafnaði um 100 þús kr. á mánuði hjá þeim sem nota þessi lyf, þýðir það í beinar tekjur fyrir ríki og sveitarfélög 750 millj. kr. í tekjuskatt og útsvar.  Það er næstum sama fjárhæð og heildarkostnaðurinn.

Fólki með athyglisbrest á háu stigi er hættara að falla út af vinnumarkaði og enda á örorku- eða félagslegum bótum.  Þannig að ávinningurinn af að þetta fólk sé á lyfjum og geti unnið er ótalinn hér, en kemur til viðbótar hækkun á beinum opinberum gjöldum. 

Að opinber stofnun skuli senda frá sér greinar í fréttabréfi sínu sem virðist til þess gerðar að ala á fordómum  gagnvart ákveðnum skjólstæðingum finnst mér til háborinnar skammar.  Stofnuninni væri nær að kynna sér ávinninginn af þeim kostnaði sem verið er að leggja út fyrir.


mbl.is Kostnaður vegna lyfja við ADHD þrefaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athyglisbrestur er erfðafræðilegur sjúkdómur sem maður hefur til æviloka. Það er mikill misskilningur að hann einfaldlega hverfi þegar maður fullorðnast, einkennin einfaldlega breytast og sjúkdómurinn verður minna áberandi.

Það eru örugglega margir sem hugsa að allir fullorðnu á þessu séu að svindla á kerfinu, því miður. Fordómarnir eru miklir.

Geiri (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 01:38

2 Smámynd: Elle_

Held höfundur hafi ætlað að skrifa: . . .veldur því að börn skila EKKI árangri í skóla í samræmi við gáfur . . .

Líka er vitað börn hafa of oft verið misgreind með ADHD, eðlileg börn stimpluð ofvirk.  Ætti að varast að gefa börnum lyf sem þau ekki þurfa.  

Elle_, 28.8.2010 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband